Í Sarpi eru nú átta aðalskrár:
- munaskrá
- myndaskrá
- þjóðháttaskrá
- fornleifaskrá
- húsaskrá
- jarðfundaskrá
- kirkjuminjaskrá (kirkjur, gripir og minningarmörk)
- örnefnaskrá
Auk þess eru átta hliðarskrár í kerfinu:
- bókaskrá
- forvörsluskrá
- listmunaskrá
- myntskrá
- nafnaskrá
- skjalaskrá
- teikningaskrá
- útlánaskrá
Saman mynda þessar skrár heildarsafn Sarps.
Öllum minja- og myndasöfnum, stofnunum og fyrirtækjum, bæði opinberum og einkareknum, sem skrá og varðveita hliðstætt menningarsögulegt efni og ofannefndar stofnanir stendur til boða að gerast aðilar að Sarpi. Tilgangurinn er að samræma skráningu sambærilegra heimilda á landsvísu. Sjá nánar Tilgangur. 36 söfn og stofnanir eru nú aðilar að Sarpi. Sjá nánar Gagnaeigendur.

