Rekstrarfélag Sarps (RS)

Þann 21. júní 2002 var stofnað rekstrarfélag, sem er sameignarfélag (sf.), meðal notenda Sarps. Samkvæmt samstarfssamningi sem notendur gerðu með sér er megintilgangur félagsins að annast rekstur gagnasafns Sarps. Meginmarkmið með gagnasafni Sarps er samkvæmt samningnum "að varðveita heimildasöfn Þjóðminjasafns Íslands, Fornleifaverndar ríkisins, Húsafriðunarnefndar ríkisins, Örnefnastofnunar Íslands (nú Örnefnasafns Stofnunar Árna Magnússonar) og hliðstæðar menningarsögulegar upplýsingar annarra stofnana, safna og fyrirtækja. Í tilgangi félagsins felst m.a. umsjón með fjármálum félagsins, eignarhald á gagnasafni Sarps, veiting notendaleyfa fyrir kerfið, kennsla og ráðgjöf um notkun þess, eftirlit með skráningu og innsetningu mynda og umsjón með grunntöflum."

Stjórnun félagsins er tvíþætt. Annars vegar skal félagið hafa níu manna fulltrúaráði á að skipa og hins vegar skal ráðið kjósa úr sínum hópi þriggja manna framkvæmdastjórn.

Eftirfarandi einstaklingar eiga nú sæti í fulltrúaráðinu:

  • Anna Guðný Ásgeirsdóttir, Þjóðminjasafni Íslands
  • Guðný Gerður Gunnarsdóttir, Minjasafni Reykjavíkur
  • Haraldur Egilsson, Minjasafninu á Akureyri
  • Lýður Pálsson, Byggðsafni Árnesinga
  • Nikulás Úlfar Másson, Húsafriðunarnefnd ríkisins
  • Margrét Hallgrímsdóttir, Þjóðminjasafni Íslands, formaður
  • Pétur Kristjánsson, Tækniminjasafni Austurlands
  • Hallgrímur J Ámundason, Stofnun Árna Magnússonar, Örnefnasafni
  • Þorvaldur Böðvarsson, Þjóðminjasafni Íslands

Framkvæmdastjórnina skipa nú eftirfarandi einstaklingar:

  • Anna Guðný Ásgeirsdóttir, Þjóðminjasafni Íslands, formaður
  • Guðný Gerður Gunnarsdóttir, Árbæjarsafni, gjaldkeri
  • Nikulás Úlfar Másson, Húsafriðunarnefnd ríkisins, ritari

Framkvæmdastjóri félagsins er Frosti F. Jóhannsson þjóðháttafræðingur. Sími: 530 2219; Netfang: frosti@sarpur.is


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning