Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
ListamaðurÁsgrímur Jónsson 1876-1958
VerkheitiDjákninn á Myrká
Ártal1952

GreinTeiknun - Túskteikningar
Stærð29,5 x 42 cm
EfnisinntakDraugur, Hestur, Höfuðfat, Kona, Skikkja, Þjóðsaga

Nánari upplýsingar

NúmerLÍÁJ-898/156
AðalskráMyndlist/Hönnun
UndirskráAðalskrá, Safn Ásgríms Jónssonar

EfniTúsk
AðferðTækni,Teiknun,Túskteikning
HöfundarétturListasafn Íslands , Myndstef

Sýningartexti

Til eru fjölmargar íslenskar þjóðsögur af draugum sem láta yfirleitt illt af sér leiða. Ásgrímur Jónsson gerði fjölda verka þar sem myndefnið er sótt í eina frægustu draugasögu landsins, söguna um djáknann á Myrká sem kemur eftir andlátið að sækja unnustu sína, Guðrúnu. Í mörgum þeirra velur hann eitt magnaðasta augnablik sögunnar, þar sem hesturinn Faxi hnýtur fram á ísskörina við ána svo hatturinn lyftist upp svo skín í bera hauskúpuna og djákninn segir:

„Máninn líður,

dauðinn ríður;

sérðu ekki hvítan blett

í hnakka mínum,

Garún, Garún?“

 

Icelandic folklore abounds in stories of ghosts. Such creatures are generally malevolent in their haunting. In The Deacon of Myrká Ásgrímur opts to depict one of the most dramatic moments in this dark tale: The deacon comes riding to fetch his sweetheart Guðrún, who mounts his horse behind him. The horse stumbles on the ice, and the deacon’s hat lifts up at the back. In the moonlight Guðrún sees to her horror the bare bone of his skull: the deacon is dead, and has come to carry her away!


© Höfundarréttur

Afrit af safnkosti þeim er hér er birtur felur í sér höfundaréttarvarið efni, en birtingin fer fram á grundvelli samningskvaðasamnings á milli Myndstefs og viðkomandi safns. Samningurinn veitir enn fremur leyfi til endurnotkunar verkanna til einkanota og í kennslu eða í fræðsluskyni. Öll önnur endurbirting/eintakagerð er óheimil. Ef spurningar vakna um forsendur samningskvaðasamningsins, eða ef einstaka höfundur vill ekki heimila notkun verka sinna undir ofangreindum skilmálum, skal hafa samband við Myndstef


© Copyright

National and international copyright laws protect the artwork here presented. Publishing of the artwork on this website is based on a Extended Collective License (ECL) between Myndstef and each museum, according to the Icelandic copyright bill. This ECL also permits the use of the artworks for research, educational or private use. The artworks may not be reproduced or made public in any other way. Please contact Myndstef for further information or in order to obtain a license.

Þetta aðfang er í Listasafni Íslands. Safnið varðveitir rúmlega 13 þús. listaverk eftir rúmlega 800 listamenn og er tæplega helmingur þeirra Íslendingar. Meirihluti verkanna er eftir innlenda listamenn eða um 12 þús. verk. Flest verkanna eru gjafir til safnsins en tæplega fjórðungur safneignarinnar er keyptur.

 

Öll verk í safneigninni eru skráð í stafrænan gagnagrunn sem er aðgengilegur í safninu. Unnið er að skráningu þeirra í Sarp og birtingu upplýsinga á vefnum Sarpur.is.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.