Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
HeitiTunnumerki, peningur v/síldarvinnu
Ártal1981-1994

Núv. sveitarfélagFjarðabyggð
SýslaS-Múlasýsla (7600) (Ísland)
LandÍsland

GefandiFreyr Jóhannesson 1941-

Nánari upplýsingar

NúmerSÍ/2014-95-2
AðalskráMunur
UndirskráAlmenn munaskrá
Stærð2,1 x 2 x 0,3 cm
EfniPlast

Lýsing

Tunnumerki Verktaka á Reyðarfirði, sem Jóhann Þorsteinsson, Hilmar Sigurjónsson og Friðjón Vigfússon voru aðallega í forsvari fyrir. Fyrirtækið saltaði síld frá árinu 1981 til 1994 (Hreinn Ragnarsson, 2007, 346).

Merkið er úr plasti og er rautt á litinn.

Tunnumerki, söltunarmerki. Lítil plata úr málmi eða öðru efni, líkist oft mynt. Yfirleitt merkt því fyrirtæki sem gaf það út. Tunnumerki giltu sem ávísun á opinberan gjaldmiðil, fyrir vinnu í  þágu fyrirtækisins, í þessu tilfelli fyrir söltun og niðurlögn á síld í tunnu. Orðin tunnumerki eða söltunarmerki finnast ekki í Orðabók Háskóla Íslands. Tunnumerki voru notuð á Íslandi á árunum 1920-1990, en ekki er útilokað að notkun þeirra hafi átt sér stað fyrr (Freyr Jóhannsson, 2006, 3).


Heimildir

Freyr Jóhannesson. 2006. Íslensk tunnumerki.

Hreinn Ragnarsson. (2007). Söltunarstaðir á 20. öld. Í Benedikt Sigurðsson o.fl., Silfur hafsins. Gull Íslands. Síldarsaga Íslendinga. Reykjavík: Nesútgáfan.

Þetta aðfang er hluti af safnkosti Síldarminjasafns Íslands. Safnkosturinn nær til alls sem tengist sögu síldarútvegs og síldariðnaðar Íslendinga, ásamt gripum og munum sem snerta líf hins dæmigerða íbúa í síldarbænum Siglufirði. Safnkosturinn er gríðarlega stór og má ætla að rúmlega helmingur hans sé skráður í aðfangabækur og spjaldaskrár en stór hluti er enn óskráður.


Síldarminjasafnið hefur haft aðild að Sarpi frá árinu 2012 og vinnur markvisst að skráningu safneignar


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.