Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
ListamaðurKristín Jónsdóttir frá Munkaþverá 1933-
VerkheitiTvífarar
Ártal1982

GreinTextíllist, Textíllist - Textílskúlptúrar
Stærð22,5 x 21 x 21 cm
EfnisinntakAbstrakt

Nánari upplýsingar

NúmerLÍ-7200
AðalskráMyndlist/Hönnun
UndirskráAðalskrá

EfniGifs, Plexigler, Ull
AðferðTækni,Textíltækni
HöfundarétturKristín Jónsdóttir frá Munkaþverá 1933-, Myndstef

Lýsing

Verkið er í tveimur hlutum. Þæfð ull.


Sýningartexti

Tvífararnir sem hér má sjá eru gerðir úr hvítum flóka úr ull sem Kristín fékk beint frá bónda og þæfði sjálf, en aðferðina lærði hún af bók. Þæfing er forn aðferð við nýtingu ullar, en um 1980 var þæfð ull sjaldséð í vestrænni myndlist þó að hinn þýski Joseph Beuys hafi notað ullarflóka í verk sín þegar um 1960. Við fyrstu sýn virðist hér vera um hefðbundna abstrakt höggmynd að ræða sem leiðir hugann að ís og snjó eða tveimur
verum í hríðarbyl. Misstór formin, ásamt afstöðu þeirra sín á milli, skapa spennu sem fylgt er með hreyfingu sem stígandi rákir í efninu mynda. Hrein og hvít ullin minnir einnig á fornar marmarahöggmyndir og sömuleiðis stallurinn undir fígúrunum. Hér eru fábreyttir, samanhnoðaðir ullarlagðar komnir á stall eins og um nýklassík væri að ræða og verkið sómir sér því vel í nútímanum undir hatti póstmódernisma.

 

The Lookalikes seen here are made of white woollen fleece which Kristín acquired directly from a farmer and felted herself, having learned the technique from a book. Felting is an ancient method for using wool, but around 1980 felted wool was rarely seen in western art – although German artist Joseph Beuys was using raw wool in his works as early as the 1960s. The first impression is of a conventional abstract sculpture, leading to thoughts of ice and snow, or two figures in a blizzard. The different sizes of the forms, along with their relative placement, creates a tension which is intensified by the movement established by the crescendo of lines in the material. The pure white wool is also reminiscent of ancient marble sculptures, and the same is true of the pedestal beneath the figures. Simple moulded skeins of wool are here elevated on a pedestal like works of neoclassical art, and the piece is appropriate in the present time, under the banner of postmodernism.


© Höfundarréttur

Afrit af safnkosti þeim er hér er birtur felur í sér höfundaréttarvarið efni, en birtingin fer fram á grundvelli samningskvaðasamnings á milli Myndstefs og viðkomandi safns. Samningurinn veitir enn fremur leyfi til endurnotkunar verkanna til einkanota og í kennslu eða í fræðsluskyni. Öll önnur endurbirting/eintakagerð er óheimil. Ef spurningar vakna um forsendur samningskvaðasamningsins, eða ef einstaka höfundur vill ekki heimila notkun verka sinna undir ofangreindum skilmálum, skal hafa samband við Myndstef


© Copyright

National and international copyright laws protect the artwork here presented. Publishing of the artwork on this website is based on a Extended Collective License (ECL) between Myndstef and each museum, according to the Icelandic copyright bill. This ECL also permits the use of the artworks for research, educational or private use. The artworks may not be reproduced or made public in any other way. Please contact Myndstef for further information or in order to obtain a license.

Þetta aðfang er í Listasafni Íslands. Safnið varðveitir rúmlega 13 þús. listaverk eftir rúmlega 800 listamenn og er tæplega helmingur þeirra Íslendingar. Meirihluti verkanna er eftir innlenda listamenn eða um 12 þús. verk. Flest verkanna eru gjafir til safnsins en tæplega fjórðungur safneignarinnar er keyptur.

 

Öll verk í safneigninni eru skráð í stafrænan gagnagrunn sem er aðgengilegur í safninu. Unnið er að skráningu þeirra í Sarp og birtingu upplýsinga á vefnum Sarpur.is.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.