Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
LandÍsland
HeitiVörupeningur
MyndefniBókstafur, Skrautskrift, Tölustafur
Ártal1897-1899
Nafnverð50 Aur/-ar

ÚtgefandiPétur Jens Thorsteinsson 1854-1929

Nánari upplýsingar

NúmerVB-17
AðalskráMynt/Seðlar
UndirskráEinkagjaldmiðlar
Stærð27 mm
Vigt4,674 g
EfniLátún
TækniMyntslátta

Lýsing

Þessi 50 aura vörupeningur var framleiddur fyrir verslun Péturs Jens Thorsteinssonar, kaupmanns og útgerðarmanns á Bíldudal. Peningurinn tilheyrir annarri útgáfu og var gjaldgengur í verslun Péturs á árunum 1897 til 1899.  Eini munurinn á fyrstu og annarri útgáfu peninganna er talan 97, sem er slegin á framhlið peningsins.


Heimildir

Þetta aðfang er í Myntsafni Seðlabanka og Þjóðminjasafns. Þar eru nú um 20 þúsund myntir og um 5 þúsund seðlagerðir. Stofninn í safninu er íslensk mynt og seðlar, erlendir peningar frá fyrri öldum, einkum þeir sem varða íslenskar heimildir og auk þess yngri gjaldmiðill helstu viðskiptaþjóða Íslendinga. Auk þess varðveitir safnið minnis- og heiðurspeninga og orður. Um 14.500 færslur hafa verið skráðar í Sarp en nokkuð vantar upp á að þeirri skráningu sé lokið.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.