Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
EfnisatriðiSamkynhneigð
Ártal1950-2013
Spurningaskrá118 Samkynhneigð á Íslandi

Sveitarfélag 1950Reykjavík
Núv. sveitarfélagReykjavíkurborg
SýslaGullbringusýsla (2500) (Ísland)
LandÍsland
Kyn / Fæðingarár
heimildarm.
Kvenkyns / 1938

Nánari upplýsingar

Númer2013-1-86
AðalskráÞjóðhættir
UndirskráSpurningaskrár - Svör
Sent/Móttekið27.5.2013/7.12.2013
TækniTölvuskrift

Viðhorf til samkynhneigðra

Hvenær manst þú eftir að hafa fyrst heyrt talað um samkynhneigð (óháð þinni eigin kynhneigð)? Hvernig var t.d. talað um samkynhneigt fólk á fimmta áratug 20. aldar eða á áttunda áratugnum miðað við það sem síðar varð? Hefur þú tök á samanburði frá áratug til áratugar?

Ég heyrði aldrei talað um samkynhneigð þegar ég var krakki en þegar ég var unglingur þá þekkti ég strák sem var greinilega samkynhn. Hann var sjómaður og það var sagt að hann væri að leita á skipsfélaga sína þegar hann var undir áhrifum áfengis, ég minnist þess ekki að það hafi verið gert grín að þessu , það var lítið talað um þetta en strákarnir voru alltaf á verði. Gæfan var þessum manni ekki hliðholl og dó í bruna einn og yfirgefin trúlega var hann undir áhrifum áfengis. Einnig man ég eftir tveimur mönnum til viðbótar sem voru giftir en leituðu á stráka þegar þeir voru drukknir , þetta var ekki obinbert leyndamál heldur var bara hvíslað um þetta.

Hvernig minnist þú breytinga á viðhorfum til samkynhneigðra hér á landi? Hvað hefur einkum orsakað þessar samfélagslegu viðhorfsbreytingar að þínu mati?

Hörður Torfason braut blað í sögu samkynhneigðra. Þegar farið er að tala um hlutina þá fer boltin að rúlla og fram koma sjónamið hinna ýmsu hópa fólks.

Voru einhverjir atburðir eða tiltekin tímabil í sögunni þýðingarmeiri en önnur, að þínu mati, þegar þú íhugar þær breytingar sem orðið hafa? Hvernig tengist það réttindabaráttu samkynhneigðra? Hvað hafði tíska, tónlist, bókmenntir og skemmtanalíf að segja? Hvaða máli skiptu erlend áhrif?

Hörður Torfason opnar umræðuna þó hann hafi þurft að flýja land vegna þessa , svo í kjölvafarið gusu upp hinur ótrúlegu fordómar.
Hippatímabilið hefur ábyggilega haft mikið að segja í viðhorfum og umræðu og meðal annars frelsi í kynlífi osfrv.

Finnst þér að það sé eða hafi verið munur á talsmáta og viðhorfum fólks til samkynhneigðra eftir búsetu, t.d. í dreifbýli og þéttbýli? Hvaða munur?

Lítil samfélög voru bara ekki í stakk búin til að takast á við þetta fólk og það bara hvarf í burtu og leitaði í fjölmennið.

Ýmis orð hafa verið notuð um samkynhneigða gegnum tíðina. Kynvilla, sódómía og sódómskur voru þekkt orð fyrr á tíð, en orðið samkynhneigð er aðeins rúmlega þrjátíu ára gamalt í íslensku máli. Hvaða orðum manst þú eftir að hafa heyrt um samkynhneigt fólk á ólíkum tímum?

Kynvillingar ...sódómiskir.

Hefur þú vitneskju um eða persónuleg kynni af samkynhneigðu fólki sem hefur orðið fyrir barðinu á fjandsamlegum viðhorfum, mætt ofbeldi og niðurlægingu, innan fjölskyldu sinnar eða utan, eða af eigin reynslu? Þekkir þú til fólks sem hefur hrökklast úr heimabyggð sinni eða úr landi eða svipt sig lífi af þeim sökum? Kanntu að rekja örlög þessa fólks í stuttu máli?

Konur og karlar
Voru/eru hommar og lesbíur litin sömu augum eða var/er munur þar á? Hvaða munur? Hefur þetta breyst og ef svo er, hvernig og af hverju?

Lesbíur voru miklu faldari hópur ...auðvelara fyrir þær að nálgast hver aðra.
Mín tilfinning að Lesbíur hafi komist betur af .

Hvað manstu um þá hugmynd að hommar væru kvenlegir upp til hópa og lesbíur óvenju karlmannlegar? Skipti öðruvísi klæðaburður, ímyndaður eða raunverulegur, hugsanlega einhverju máli í þessu sambandi? Hvernig þá?

Umhverfið les í allskonar tákn ..og dæmir út frá þvi. Sumt er “of Lesbílegt “ eða “of hommalegt” ...sem samfélagið er búið að ákveða.

Þótti mönnum stafa meiri ógn af öðru kyninu en hinu þegar samkynhneigt fólk átti í hlut? Hvoru kyninu? Var umtal um annað kynið t.d. meira gildishlaðið en umtal um hitt kynið?

Fólk var “hræddara” við homma. Þeir voru oft hvatvísari en konur enda voru þeir tíma drykkfeldari.

Manstu eftir einhverju öðru sem sagt var um samkynhneigðar konur og karla á ýmsum tímum ævi þinnar?

Löggjöf
Hvernig telur þú að löggjöf hafi haft áhrif á líf samkynhneigðra og viðhorf til þeirra síðar? Hvað vó þyngst að þínu mati?

Öll umræða um réttindi samkynhneigðra er af hinu góða...það virðist sem það að samkynhneigðir fái að giftast hafa skipt sköpum og að öll almenn mannréttindi séu þeirra eins og allra annara.

Hvaða augum lítur þú þessar lagasetningar, varstu hlyntur þeim eða ósammála á sínum tíma? Höfðu einhverjar af þessum lagasetningum áhrif á þitt persónulega líf, líf fjölskyldu þinnar eða vina? Á hvern hátt?

Góður áfangi hefur náðst.

Fjölmiðlar
Hvenær manstu fyrst eftir því að vikið hafi verið að kynhneigð í fjölmiðlum og þá með hvaða hætti? Kanntu að lýsa viðbrögðum við því? Manstu fjölmiðlaefni, viðtöl, greinar eða þætti sem þú telur að hafi skipt sköpum í þessu sambandi?

Samúel og Hörður Torfa !

Hvernig myndir þú bera saman fjölmiðlaumfjöllun fyrri tíma og það sem nú er boðið upp á þegar vikið er að samkynhneigð? Kanntu að nefna dæmi? Hvað er líkt, hvað er ólíkt?

Það er bara skemmst frá þvi að segja að þetta umfjöllunarefni var algjört tabú !

Hver finnst þér vera þáttur fjölmiðla í skoðanamótun þegar samkynhneigðir eiga í hlut?

Í seinni tíð hafa fjölmiðlar verið frekar jákvæðir í garð samkynhneigðra.

Manstu eftir því hvenær þú sást í fyrsta sinn kvikmynd á hvíta tjaldinu eða í sjónvarpi þar sem vikið var að samkynhneigð? Kanntu að lýsa áhrifum þess á þig og þitt nánasta umhverfi?

Hvaða vægi telur þú að fjölmiðlar hafi haft þegar meta skal aukið umburðarlyndi í garð samkynhneigðra? Hafa fjölmiðlarnir styrkt félagslega stöðu þeirra og mannvirðingu eða veikt hana?

Held þeir hafi frekar styrkt hana heldur en hitt.

Hvaða áhrif hafa þekktir einstaklingar sem greint hafa frá samkynhneigð sinni í fjölmiðlum haft á viðhorf þín til hinsegin fólks? Minnist þú einhverra tiltekinna einstaklinga í þessu sambandi sem þú telur hafa haft mikil áhrif?

Hörður Torfa
Páll Óskar
Jóhanna Sigurðard.
Þetta eru sterkir einstaklingar sem tekið er eftir og hafa haft áhrif.

Hvaða augum lítur þú veraldarvefinn (netið) og áhrif hans á stöðu og réttindabaráttu samkynhneigðra?

Árifin eru gríðarleg.

Félög og hreyfingar
Á Íslandi hafa orðið til allmörg félagasamtök eða hreyfingar samkynhneigðra og annars hinsegin fólks á síðustu áratugum. Þeirra elst og áhrifamest eru Samtökin ´78, stofnuð árið 1978, en fleiri hreyfingar hafa haft áhrif á breytt viðhorf og sýnileika samkynhneigðra, t.d. Q – Félag hinsegin stúdenta, FAS – Félag aðstandenda samkynhneigðra, Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride og Íþróttafélagið Styrmir svo fáein dæmi séu nefnd.

Hvaða augum lítur þú þessar hreyfingar og hvaða þýðingu telurðu að þær hafi haft fyrir breytt viðhorf gegnum tíðina? Þekkir þú til starfsemi þeirra og stefnumála? Áttu minningar um samskipti þín eða einhverra þér nákominna við þessi félög?

Hefur þú sótt hátíð Hinsegin daga í Reykjavík og hvaða augum lítur þú slíkt framtak?

Gott mál :)

Minningar um samkynhneigða einstaklinga
Hvaða kynni hefur þú (óháð eigin kynhneigð) haft af samkynhneigðu fólki, meðal vina, vinnufélaga eða í fjölskyldu þinni? Fyrsta samkynhneigða manneskjan sem þú kynntist (nema þú sért hinsegin), hvað er þér minnisstætt við hana? Hvaða áhrif höfðu slík kynni á skoðanir þínar og viðhorf til homma og lesbía?

T.d þessi drengur sem ég þekkti sem unglingur , var einstaklega góður og skemmtilegur en vegna fordóma urðu hans örlög svo sorgleg. Hann var einn af mínum bestu vinum.

Síðar á ævinni kynntist ég frábærri konu sem var lesbía, afburðar greind og flott manneskja , ég hugsaði aldrei um hennar kynhneigð í okkar samskiptum , fyrst og fremst var þetta manneskja sem mér þótti vænt um.

Að sjálfsögðu hafa þessi kynni haft áhrif á mínar hugmyndir um samkynhneigð , fyrst og fremst verið mér til góðs sem lærdómur, því það eru ekki allar manneskur eins.

 

 


Kafli 1 af 6 - Viðhorf til samkynhneigðra

Hvenær manst þú eftir að hafa fyrst heyrt talað um samkynhneigð (óháð þinni eigin kynhneigð)? Hvernig var t.d. talað um samkynhneigt fólk á fimmta áratug 20. aldar eða á áttunda áratugnum miðað við það sem síðar varð? Hefur þú tök á samanburði frá áratug til áratugar?
Hvernig minnist þú breytinga á viðhorfum til samkynhneigðra hér á landi? Hvað hefur einkum orsakað þessar samfélagslegu viðhorfsbreytingar að þínu mati?
Voru einhverjir atburðir eða tiltekin tímabil í sögunni þýðingarmeiri en önnur, að þínu mati, þegar þú íhugar þær breytingar sem orðið hafa? Hvernig tengist það réttindabaráttu samkynhneigðra? Hvað hafði tíska, tónlist, bókmenntir og skemmtanalíf að segja? Hvaða máli skiptu erlend áhrif?
Finnst þér að það sé eða hafi verið munur á talsmáta og viðhorfum fólks til samkynhneigðra eftir búsetu, t.d. í dreifbýli og þéttbýli? Hvaða munur?
Ýmis orð hafa verið notuð um samkynhneigða gegnum tíðina. Kynvilla, sódómía og sódómskur voru þekkt orð fyrr á tíð, en orðið samkynhneigð er aðeins rúmlega þrjátíu ára gamalt í íslensku máli. Hvaða orðum manst þú eftir að hafa heyrt um samkynhneigt fólk á ólíkum tímum?
Hefur þú vitneskju um eða persónuleg kynni af samkynhneigðu fólki sem hefur orðið fyrir barðinu á fjandsamlegum viðhorfum, mætt ofbeldi og niðurlægingu, innan fjölskyldu sinnar eða utan, eða af eigin reynslu? Þekkir þú til fólks sem hefur hrökklast úr heimabyggð sinni eða úr landi eða svipt sig lífi af þeim sökum? Kanntu að rekja örlög þessa fólks í stuttu máli?
Hér getur þú svarað öllum spurningunum í þessum kafla í samfelldu máli og algerlega frjálst, ef að þér finnst það betra.

Kafli 2 af 6 - Konur og karlar

Voru/eru hommar og lesbíur litin sömu augum eða var/er munur þar á? Hvaða munur? Hefur þetta breyst og ef svo er, hvernig og af hverju?
Hvað manstu um þá hugmynd að hommar væru kvenlegir upp til hópa og lesbíur óvenju karlmannlegar? Skipti öðruvísi klæðaburður, ímyndaður eða raunverulegur, hugsanlega einhverju máli í þessu sambandi? Hvernig þá?
Þótti mönnum stafa meiri ógn af öðru kyninu en hinu þegar samkynhneigt fólk átti í hlut? Hvoru kyninu? Var umtal um annað kynið t.d. meira gildishlaðið en umtal um hitt kynið?
Manstu eftir einhverju öðru sem sagt var um samkynhneigðar konur og karla á ýmsum tímum ævi þinnar?
Hér getur þú svarað öllum spurningunum í þessum kafla í samfelldu máli og algerlega frjálst, ef að þér finnst það betra.

Kafli 3 af 6 - Löggjöf

Hvernig telur þú að löggjöf hafi haft áhrif á líf samkynhneigðra og viðhorf til þeirra síðar? Hvað vó þyngst að þínu mati?
Hvaða augum lítur þú þessar lagasetningar, varstu hlyntur þeim eða ósammála á sínum tíma? Höfðu einhverjar af þessum lagasetningum áhrif á þitt persónulega líf, líf fjölskyldu þinnar eða vina? Á hvern hátt?
Hér getur þú svarað öllum spurningunum í þessum kafla í samfelldu máli og algerlega frjálst, ef að þér finnst það betra.

Kafli 4 af 6 - Félög og hreyfingar

Á Íslandi hafa orðið til allmörg félagasamtök eða hreyfingar samkynhneigðra og annars hinsegin fólks á síðustu áratugum. Þeirra elst og áhrifamest eru Samtökin ´78, stofnuð árið 1978, en fleiri hreyfingar hafa haft áhrif á breytt viðhorf og sýnileika samkynhneigðra, t.d. Q – Félag hinsegin stúdenta, FAS – Félag aðstandenda samkynhneigðra, Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride og Íþróttafélagið Styrmir svo fáein dæmi séu nefnd. Hvaða augum lítur þú þessar hreyfingar og hvaða þýðingu telurðu að þær hafi haft fyrir breytt viðhorf gegnum tíðina? Þekkir þú til starfsemi þeirra og stefnumála? Áttu minningar um samskipti þín eða einhverra þér nákominna við þessi félög?
Hefur þú sótt hátíð Hinsegin daga í Reykjavík og hvaða augum lítur þú slíkt framtak?
Hér getur þú svarað öllum spurningunum í þessum kafla í samfelldu máli og algerlega frjálst, ef að þér finnst það betra.

Kafli 5 af 6 - Fjölmiðlar

Hvenær manstu fyrst eftir því að vikið hafi verið að kynhneigð í fjölmiðlum og þá með hvaða hætti? Kanntu að lýsa viðbrögðum við því? Manstu fjölmiðlaefni, viðtöl, greinar eða þætti sem þú telur að hafi skipt sköpum í þessu sambandi?
Hvernig myndir þú bera saman fjölmiðlaumfjöllun fyrri tíma og það sem nú er boðið upp á þegar vikið er að samkynhneigð? Kanntu að nefna dæmi? Hvað er líkt, hvað er ólíkt?
Hver finnst þér vera þáttur fjölmiðla í skoðanamótun þegar samkynhneigðir eiga í hlut?
Manstu eftir því hvenær þú sást í fyrsta sinn kvikmynd á hvíta tjaldinu eða í sjónvarpi þar sem vikið var að samkynhneigð? Kanntu að lýsa áhrifum þess á þig og þitt nánasta umhverfi?
Hvaða vægi telur þú að fjölmiðlar hafi haft þegar meta skal aukið umburðarlyndi í garð samkynhneigðra? Hafa fjölmiðlarnir styrkt félagslega stöðu þeirra og mannvirðingu eða veikt hana?
Hvaða áhrif hafa þekktir einstaklingar sem greint hafa frá samkynhneigð sinni í fjölmiðlum haft á viðhorf þín til hinsegin fólks? Minnist þú einhverra tiltekinna einstaklinga í þessu sambandi sem þú telur hafa haft mikil áhrif?
Hvaða augum lítur þú veraldarvefinn (netið) og áhrif hans á stöðu og réttindabaráttu samkynhneigðra?
Hér getur þú svarað öllum spurningunum í þessum kafla í samfelldu máli og algerlega frjálst, ef að þér finnst það betra.

Kafli 6 af 6 - Minningar um samkynhneigða einstaklinga

Hvaða kynni hefur þú (óháð eigin kynhneigð) haft af samkynhneigðu fólki, meðal vina, vinnufélaga eða í fjölskyldu þinni? Fyrsta samkynhneigða manneskjan sem þú kynntist (nema þú sért hinsegin), hvað er þér minnisstætt við hana? Hvaða áhrif höfðu slík kynni á skoðanir þínar og viðhorf til homma og lesbía?

Þetta aðfang er í Þjóðminjasafni Íslands. Safnið varðveitir um 7 milljónir mynda, um 130 þúsund muni og rúmlega 26 þúsund færslur um þjóðhætti. Í húsasafni eru um 60 hús.

 

Áætlað er að um 80-90 % þessara aðfanga sé komin í stafrænan búning, mismunandi eftir tegundum. Einnig er skráningin mismunandi ítarleg og myndir bara við hluta gagnanna.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.

Verðskrá myndapantana