Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
EfnisatriðiSamkynhneigð
Ártal1973-2013
Spurningaskrá118 Samkynhneigð á Íslandi

ByggðaheitiGarðabær
Sveitarfélag 1950Garðahreppur, Reykjavík
Núv. sveitarfélagGarðabær, Reykjavíkurborg
SýslaGullbringusýsla (2500) (Ísland)
LandÍsland
Kyn / Fæðingarár
heimildarm.
Kvenkyns / 1961

Nánari upplýsingar

Númer2013-1-89
AðalskráÞjóðhættir
UndirskráSpurningaskrár - Svör
Sent/Móttekið27.5.2013/28.1.2014
TækniTölvuskrift

Viðhorf til samkynhneigðra

Hvenær manst þú eftir að hafa fyrst heyrt talað um samkynhneigð (óháð þinni eigin kynhneigð)? Hvernig var t.d. talað um samkynhneigt fólk á fimmta áratug 20. aldar eða á áttunda áratugnum miðað við það sem síðar varð? Hefur þú tök á samanburði frá áratug til áratugar?

Ég heyrði fyrst um samkynhneigð þegar ég var 12-13 ára gömul.

Hvernig minnist þú breytinga á viðhorfum til samkynhneigðra hér á landi? Hvað hefur einkum orsakað þessar samfélagslegu viðhorfsbreytingar að þínu mati?

Einna helst minnist ég breytinga þegar fleiri komu fram og tjáðu samkynhneigð sína. Ég hef satt að segja lítið verið að hugsa um kynhneigð fólks,auðvitað var það meira mál hér áður fyrr þegar færri voru að tjá kynhneigð sína því þá var þetta fólk litið öðrum augum.Samfélagslegu viðhorfsbreytingar snúa sjálfsagt að því að heimurinn er minni en áður fyrr,fólk hefur búið út um allan heim,ferðast meira og sennilega ekkert
að spá í hver kynhneigð fólks er.

Voru einhverjir atburðir eða tiltekin tímabil í sögunni þýðingarmeiri en önnur, að þínu mati, þegar þú íhugar þær breytingar sem orðið hafa? Hvernig tengist það réttindabaráttu samkynhneigðra? Hvað hafði tíska, tónlist, bókmenntir og skemmtanalíf að segja? Hvaða máli skiptu erlend áhrif?

Nei ég man ekki eftir neinu.Ég man ekki hvenær réttindabarátta samkynhneigða hófst,man t.d. þegar Hörður Torfason var gerður“ brottrækur „frá Íslandi en hvaða ár man ég ekki.Hörð kannaðist ég við þar sem hann hafði dvalið í mínum heimabæ við leikstjórn og var heimagangur í mínu heimili.Ég man hvað ég var sár þegar fólk var að tala um hans kynhneigð og hneykslast.Erlend áhrif skiptu miklu máli en hvernig get
ég ekki útskýrt.Tíska,tónlist og öll menning hafði mikið að segja,fullt af fólki sem var
og er samkynhneigt sem kom að þessum þáttum.

Finnst þér að það sé eða hafi verið munur á talsmáta og viðhorfum fólks til samkynhneigðra eftir búsetu, t.d. í dreifbýli og þéttbýli? Hvaða munur?

Já svo sannarlega,ég ólst upp úti á landi frá 9 ára aldri til 20 ára(bjó í Reykjavík á menntaskólaárunum)og þar var auðvelt að tala illa um náungann sérstaklega ef hann var öðruvísi og hvað þá ef hann/hún var samkynhneigður.Man eftir einum manni sem var samkynhneigður en lítið talað um hann

Ýmis orð hafa verið notuð um samkynhneigða gegnum tíðina. Kynvilla, sódómía og sódómskur voru þekkt orð fyrr á tíð, en orðið samkynhneigð er aðeins rúmlega þrjátíu ára gamalt í íslensku máli. Hvaða orðum manst þú eftir að hafa heyrt um samkynhneigt fólk á ólíkum tímum?

Ég man eftir orðinu kynvilla en ekki fleiri orðum.

Hefur þú vitneskju um eða persónuleg kynni af samkynhneigðu fólki sem hefur orðið fyrir barðinu á fjandsamlegum viðhorfum, mætt ofbeldi og niðurlægingu, innan fjölskyldu sinnar eða utan, eða af eigin reynslu? Þekkir þú til fólks sem hefur hrökklast úr heimabyggð sinni eða úr landi eða svipt sig lífi af þeim sökum? Kanntu að rekja örlög þessa fólks í stuttu máli?

Nei.

Konur og karlar
Voru/eru hommar og lesbíur litin sömu augum eða var/er munur þar á? Hvaða munur? Hefur þetta breyst og ef svo er, hvernig og af hverju?

Ég held að sumir líti lesbíum öðrum augum en homma,en veit ekki af hverju.
Kannski er það þannig að gagnkynhneigðir karlar skilja ekki homma og gagnkynhneigðar konur skilja ekki lesbíur.Er skylda að skilja allt......

Hvað manstu um þá hugmynd að hommar væru kvenlegir upp til hópa og lesbíur óvenju karlmannlegar? Skipti öðruvísi klæðaburður, ímyndaður eða raunverulegur, hugsanlega einhverju máli í þessu sambandi? Hvernig þá?

Man lítið.
Klæðaburður samkynhneigða skiptir örugglega einhverju máli,sumir karlmenn eru kvenlegir og klæða sig þannig að allir eiga að sjá hans kynhneigð og eins með lesbíurnar þær vilja sýna sinn karlmannleika með klæðaburði og jafnvel talsmáta.

Þótti mönnum stafa meiri ógn af öðru kyninu en hinu þegar samkynhneigt fólk átti í hlut? Hvoru kyninu? Var umtal um annað kynið t.d. meira gildishlaðið en umtal um hitt kynið?

Get ekki svarað þessari spurningu.

Manstu eftir einhverju öðru sem sagt var um samkynhneigðar konur og karla á ýmsum tímum ævi þinnar?

Nei.

Löggjöf
Hvernig telur þú að löggjöf hafi haft áhrif á líf samkynhneigðra og viðhorf til þeirra síðar? Hvað vó þyngst að þínu mati?

Löggjöfin hlýtur að hafa haft áhrif á líf samkynhneigðra ég hef ekkert kynnt mér þessi mál,get ekki skilið af hverju löggjöf þessa fólks þarf að vera öðruvísi en löggjöf gagnkynhneigðra.

Hvaða augum lítur þú þessar lagasetningar, varstu hlyntur þeim eða ósammála á sínum tíma? Höfðu einhverjar af þessum lagasetningum áhrif á þitt persónulega líf, líf fjölskyldu þinnar eða vina? Á hvern hátt?

Ekkert kynnt mér þessar lagasetningar.
Nei ekki áhrif á mitt persónulega líf né minnar fjölskyldu.

Fjölmiðlar
Hvenær manstu fyrst eftir því að vikið hafi verið að kynhneigð í fjölmiðlum og þá með hvaða hætti? Kanntu að lýsa viðbrögðum við því? Manstu fjölmiðlaefni, viðtöl, greinar eða þætti sem þú telur að hafi skipt sköpum í þessu sambandi?

Man ekki.

Hvernig myndir þú bera saman fjölmiðlaumfjöllun fyrri tíma og það sem nú er boðið upp á þegar vikið er að samkynhneigð? Kanntu að nefna dæmi? Hvað er líkt, hvað er ólíkt?

Hver finnst þér vera þáttur fjölmiðla í skoðanamótun þegar samkynhneigðir eiga í hlut?

Manstu eftir því hvenær þú sást í fyrsta sinn kvikmynd á hvíta tjaldinu eða í sjónvarpi þar sem vikið var að samkynhneigð? Kanntu að lýsa áhrifum þess á þig og þitt nánasta umhverfi?

Man ekki.

Hvaða vægi telur þú að fjölmiðlar hafi haft þegar meta skal aukið umburðarlyndi í garð samkynhneigðra? Hafa fjölmiðlarnir styrkt félagslega stöðu þeirra og mannvirðingu eða veikt hana?

Hvaða áhrif hafa þekktir einstaklingar sem greint hafa frá samkynhneigð sinni í fjölmiðlum haft á viðhorf þín til hinsegin fólks? Minnist þú einhverra tiltekinna einstaklinga í þessu sambandi sem þú telur hafa haft mikil áhrif?

Hvaða augum lítur þú veraldarvefinn (netið) og áhrif hans á stöðu og réttindabaráttu samkynhneigðra?

Félög og hreyfingar
Á Íslandi hafa orðið til allmörg félagasamtök eða hreyfingar samkynhneigðra og annars hinsegin fólks á síðustu áratugum. Þeirra elst og áhrifamest eru Samtökin ´78, stofnuð árið 1978, en fleiri hreyfingar hafa haft áhrif á breytt viðhorf og sýnileika samkynhneigðra, t.d. Q – Félag hinsegin stúdenta, FAS – Félag aðstandenda samkynhneigðra, Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride og Íþróttafélagið Styrmir svo fáein dæmi séu nefnd.

Hvaða augum lítur þú þessar hreyfingar og hvaða þýðingu telurðu að þær hafi haft fyrir breytt viðhorf gegnum tíðina? Þekkir þú til starfsemi þeirra og stefnumála? Áttu minningar um samskipti þín eða einhverra þér nákominna við þessi félög?

Ég efast ekki um að þessi samtök hafi hjálpað samkynhneigðum,eru svo sannarlega af hinu góða.Þekki ekki til starfsemi þeirra annað en það sem ég hef lesið í blöðunum þegar þau eru í viðtölum.
Nei.

Hefur þú sótt hátíð Hinsegin daga í Reykjavík og hvaða augum lítur þú slíkt framtak?

Nei,ég hef ekki sótt þessa hátið.Finnst hún satt að segja hálf hallærisleg.Ég skil ekki hvernig þessi hátið á að auka skilning annara á samkynheigð eða af hverju allir halda að þetta sé málið til að vekja athygli á rétti sínum.Veit samt innst inni að þessi hátíð er af hinu góða og allt það ......Fjölmiðlarnir gera að vísu mjög mikið úr þessari hátið,það er enginn maður með mönnum nema hann fari í bæinn til að horfa á klæðaburð fólksins og hlusta á söng. Heillar mig ekki.

Minningar um samkynhneigða einstaklinga
Hvaða kynni hefur þú (óháð eigin kynhneigð) haft af samkynhneigðu fólki, meðal vina, vinnufélaga eða í fjölskyldu þinni? Fyrsta samkynhneigða manneskjan sem þú kynntist (nema þú sért hinsegin), hvað er þér minnisstætt við hana? Hvaða áhrif höfðu slík kynni á skoðanir þínar og viðhorf til homma og lesbía?

Hef unnið með samkynhneigðu fólki og hef ekkert nema gott um þau að segja. Hörður Torfason er sá fyrst sem ég kynntist (má nafngreina??) sem unglingur, flottur maður,góður og hrífandi persóna.

 


Kafli 1 af 6 - Viðhorf til samkynhneigðra

Hvenær manst þú eftir að hafa fyrst heyrt talað um samkynhneigð (óháð þinni eigin kynhneigð)? Hvernig var t.d. talað um samkynhneigt fólk á fimmta áratug 20. aldar eða á áttunda áratugnum miðað við það sem síðar varð? Hefur þú tök á samanburði frá áratug til áratugar?
Hvernig minnist þú breytinga á viðhorfum til samkynhneigðra hér á landi? Hvað hefur einkum orsakað þessar samfélagslegu viðhorfsbreytingar að þínu mati?
Voru einhverjir atburðir eða tiltekin tímabil í sögunni þýðingarmeiri en önnur, að þínu mati, þegar þú íhugar þær breytingar sem orðið hafa? Hvernig tengist það réttindabaráttu samkynhneigðra? Hvað hafði tíska, tónlist, bókmenntir og skemmtanalíf að segja? Hvaða máli skiptu erlend áhrif?
Finnst þér að það sé eða hafi verið munur á talsmáta og viðhorfum fólks til samkynhneigðra eftir búsetu, t.d. í dreifbýli og þéttbýli? Hvaða munur?
Ýmis orð hafa verið notuð um samkynhneigða gegnum tíðina. Kynvilla, sódómía og sódómskur voru þekkt orð fyrr á tíð, en orðið samkynhneigð er aðeins rúmlega þrjátíu ára gamalt í íslensku máli. Hvaða orðum manst þú eftir að hafa heyrt um samkynhneigt fólk á ólíkum tímum?
Hefur þú vitneskju um eða persónuleg kynni af samkynhneigðu fólki sem hefur orðið fyrir barðinu á fjandsamlegum viðhorfum, mætt ofbeldi og niðurlægingu, innan fjölskyldu sinnar eða utan, eða af eigin reynslu? Þekkir þú til fólks sem hefur hrökklast úr heimabyggð sinni eða úr landi eða svipt sig lífi af þeim sökum? Kanntu að rekja örlög þessa fólks í stuttu máli?
Hér getur þú svarað öllum spurningunum í þessum kafla í samfelldu máli og algerlega frjálst, ef að þér finnst það betra.

Kafli 2 af 6 - Konur og karlar

Voru/eru hommar og lesbíur litin sömu augum eða var/er munur þar á? Hvaða munur? Hefur þetta breyst og ef svo er, hvernig og af hverju?
Hvað manstu um þá hugmynd að hommar væru kvenlegir upp til hópa og lesbíur óvenju karlmannlegar? Skipti öðruvísi klæðaburður, ímyndaður eða raunverulegur, hugsanlega einhverju máli í þessu sambandi? Hvernig þá?
Þótti mönnum stafa meiri ógn af öðru kyninu en hinu þegar samkynhneigt fólk átti í hlut? Hvoru kyninu? Var umtal um annað kynið t.d. meira gildishlaðið en umtal um hitt kynið?
Manstu eftir einhverju öðru sem sagt var um samkynhneigðar konur og karla á ýmsum tímum ævi þinnar?
Hér getur þú svarað öllum spurningunum í þessum kafla í samfelldu máli og algerlega frjálst, ef að þér finnst það betra.

Kafli 3 af 6 - Löggjöf

Hvernig telur þú að löggjöf hafi haft áhrif á líf samkynhneigðra og viðhorf til þeirra síðar? Hvað vó þyngst að þínu mati?
Hvaða augum lítur þú þessar lagasetningar, varstu hlyntur þeim eða ósammála á sínum tíma? Höfðu einhverjar af þessum lagasetningum áhrif á þitt persónulega líf, líf fjölskyldu þinnar eða vina? Á hvern hátt?
Hér getur þú svarað öllum spurningunum í þessum kafla í samfelldu máli og algerlega frjálst, ef að þér finnst það betra.

Kafli 4 af 6 - Félög og hreyfingar

Á Íslandi hafa orðið til allmörg félagasamtök eða hreyfingar samkynhneigðra og annars hinsegin fólks á síðustu áratugum. Þeirra elst og áhrifamest eru Samtökin ´78, stofnuð árið 1978, en fleiri hreyfingar hafa haft áhrif á breytt viðhorf og sýnileika samkynhneigðra, t.d. Q – Félag hinsegin stúdenta, FAS – Félag aðstandenda samkynhneigðra, Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride og Íþróttafélagið Styrmir svo fáein dæmi séu nefnd. Hvaða augum lítur þú þessar hreyfingar og hvaða þýðingu telurðu að þær hafi haft fyrir breytt viðhorf gegnum tíðina? Þekkir þú til starfsemi þeirra og stefnumála? Áttu minningar um samskipti þín eða einhverra þér nákominna við þessi félög?
Hefur þú sótt hátíð Hinsegin daga í Reykjavík og hvaða augum lítur þú slíkt framtak?
Hér getur þú svarað öllum spurningunum í þessum kafla í samfelldu máli og algerlega frjálst, ef að þér finnst það betra.

Kafli 5 af 6 - Fjölmiðlar

Hvenær manstu fyrst eftir því að vikið hafi verið að kynhneigð í fjölmiðlum og þá með hvaða hætti? Kanntu að lýsa viðbrögðum við því? Manstu fjölmiðlaefni, viðtöl, greinar eða þætti sem þú telur að hafi skipt sköpum í þessu sambandi?
Hvernig myndir þú bera saman fjölmiðlaumfjöllun fyrri tíma og það sem nú er boðið upp á þegar vikið er að samkynhneigð? Kanntu að nefna dæmi? Hvað er líkt, hvað er ólíkt?
Hver finnst þér vera þáttur fjölmiðla í skoðanamótun þegar samkynhneigðir eiga í hlut?
Manstu eftir því hvenær þú sást í fyrsta sinn kvikmynd á hvíta tjaldinu eða í sjónvarpi þar sem vikið var að samkynhneigð? Kanntu að lýsa áhrifum þess á þig og þitt nánasta umhverfi?
Hvaða vægi telur þú að fjölmiðlar hafi haft þegar meta skal aukið umburðarlyndi í garð samkynhneigðra? Hafa fjölmiðlarnir styrkt félagslega stöðu þeirra og mannvirðingu eða veikt hana?
Hvaða áhrif hafa þekktir einstaklingar sem greint hafa frá samkynhneigð sinni í fjölmiðlum haft á viðhorf þín til hinsegin fólks? Minnist þú einhverra tiltekinna einstaklinga í þessu sambandi sem þú telur hafa haft mikil áhrif?
Hvaða augum lítur þú veraldarvefinn (netið) og áhrif hans á stöðu og réttindabaráttu samkynhneigðra?
Hér getur þú svarað öllum spurningunum í þessum kafla í samfelldu máli og algerlega frjálst, ef að þér finnst það betra.

Kafli 6 af 6 - Minningar um samkynhneigða einstaklinga

Hvaða kynni hefur þú (óháð eigin kynhneigð) haft af samkynhneigðu fólki, meðal vina, vinnufélaga eða í fjölskyldu þinni? Fyrsta samkynhneigða manneskjan sem þú kynntist (nema þú sért hinsegin), hvað er þér minnisstætt við hana? Hvaða áhrif höfðu slík kynni á skoðanir þínar og viðhorf til homma og lesbía?

Þetta aðfang er í Þjóðminjasafni Íslands. Safnið varðveitir um 7 milljónir mynda, um 130 þúsund muni og rúmlega 26 þúsund færslur um þjóðhætti. Í húsasafni eru um 60 hús.

 

Áætlað er að um 80-90 % þessara aðfanga sé komin í stafrænan búning, mismunandi eftir tegundum. Einnig er skráningin mismunandi ítarleg og myndir bara við hluta gagnanna.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.

Verðskrá myndapantana