Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
ListamaðurJón Engilberts 1908-1972
VerkheitiMadame
Ártal1937

GreinMálaralist - Olíumálverk
Stærð130 x 168,5 cm
EfnisinntakKona, Lampi, Mannamynd

Nánari upplýsingar

NúmerLÍ-3517
AðalskráMyndlist/Hönnun
UndirskráAðalskrá

EfniOlíulitur
AðferðTækni,Málun
HöfundarétturJón Engilberts-Erfingjar , Myndstef

Sýningartexti

Jón Engilberts stundaði listnám hjá Stefáni Eiríkssyni og Guðmundi Thorsteinssyni og síðar í Kaupmannahöfn og Ósló á árunum 1927–1933. Dvölin í Ósló hafði sérstök áhrif á litaspjald málarans sem varð þyngra og heitara auk þess sem formin voru mörkuð með dökkri útlínu sem jafnframt var burðargrind verkanna. Á kreppuárunum fór Jón, sem og margir íslenskir listamenn, að líta sér nær og skoða sitt nánasta umhverfi; mannlífið varð helsta viðfangsefnið eftir að náttúran hafði verið í aðalhlutverki. Viðfangsefni Jóns voru oft alþýðufólk til sjávar og sveita en stíll hans einkenndist af kraftmikilli pensilskrift og ástríðuþrungnum litaskala. Í verkinu Madame frá 1937 málar Jón fyrirsætuna Ellen Vogelius í anda norræns expressjónisma með sterkri útlínuteikningu og andstæðum litum.

 

Jón Engilberts studied art privately with Stefán Eiríksson and Guðmundur Thorsteinsson in Reykjavík, and later in Copenhagen and Oslo in 1927–1933. The time in Oslo had a particular influence on his colour palette, which became heavier and warmer, in addition to which the shapes were defined by dark outlines that were also the supporting frame for the works. During the Great Depression, like many Icelandic artists, Jón became introspective and began to examine his closest surroundings; daily life became his main subject, replacing nature in the leading role. Jón’s subjects were often ordinary people from fishing or farming communities, but his style was characterised by powerful brushstrokes and a passionate colour palette. In Madame Jón interprets the model, Ellen Vogelius, in the spirit of Nordic expressionism, with strong outlines and contrasting colours.

 


© Höfundarréttur

Afrit af safnkosti þeim er hér er birtur felur í sér höfundaréttarvarið efni, en birtingin fer fram á grundvelli samningskvaðasamnings á milli Myndstefs og viðkomandi safns. Samningurinn veitir enn fremur leyfi til endurnotkunar verkanna til einkanota og í kennslu eða í fræðsluskyni. Öll önnur endurbirting/eintakagerð er óheimil. Ef spurningar vakna um forsendur samningskvaðasamningsins, eða ef einstaka höfundur vill ekki heimila notkun verka sinna undir ofangreindum skilmálum, skal hafa samband við Myndstef


© Copyright

National and international copyright laws protect the artwork here presented. Publishing of the artwork on this website is based on a Extended Collective License (ECL) between Myndstef and each museum, according to the Icelandic copyright bill. This ECL also permits the use of the artworks for research, educational or private use. The artworks may not be reproduced or made public in any other way. Please contact Myndstef for further information or in order to obtain a license.

Þetta aðfang er í Listasafni Íslands. Safnið varðveitir rúmlega 13 þús. listaverk eftir rúmlega 800 listamenn og er tæplega helmingur þeirra Íslendingar. Meirihluti verkanna er eftir innlenda listamenn eða um 12 þús. verk. Flest verkanna eru gjafir til safnsins en tæplega fjórðungur safneignarinnar er keyptur.

 

Öll verk í safneigninni eru skráð í stafrænan gagnagrunn sem er aðgengilegur í safninu. Unnið er að skráningu þeirra í Sarp og birtingu upplýsinga á vefnum Sarpur.is.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.