Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
EfnisatriðiLoftslagsbreytingar
Ártal2019
Spurningaskrá125 Loftslagsbreytingar og framtíðin

LandÍsland
Kyn / Fæðingarár
heimildarm.
Kvenkyns / 1959

Nánari upplýsingar

Númer2018-1-125
AðalskráÞjóðhættir
UndirskráSpurningaskrár - Svör
Sent/Móttekið18.10.2019/23.3.2019
TækniTölvuskrift

Kafli 1 af 8 - Almennt

Hvað tengir þú helst við loftslagsbreytingar af mannavöldum? Hér getur þú látið hugann reika.

Minnkun regnskóga og óhófleg neysla á öllu. Plast og aftur plast og endalausar umbúðir. Brennsla á kolum og jarðefnum. Dýrategundir í útrýmingarhættu og sem eru nú þegar útdauðar. Matarsóun á öllum stigum framleiðslunnar. Einnota hlutir og ódýrt drasl sem endist stutt. Of mikil kjötneysla. Pálmaolía og fleira og fleira.



Kafli 2 af 8 - Eigin upplifun

Loftslagsbreytingar eru hnattrænar en hækkað hitastig á jörðinni getur einnig haft miklar staðbundnar afleiðingar. Hefur þú upplifað einhverjar afleiðingar af loftslagsbreytingunum? Hvaða afleiðingar, hvar og hvernig? Hafa loftslagsbreytingar haft áhrif á líf þitt? Á hvaða hátt?

Vissulega höfum við ekki orðið vör við hlýnun hér á landi en breytingar á veðri og óstöðugt veður er orðið æ algengara. Ég hef ekki sjálf upplifað afleiðingar en sé þær í fréttum á hverjum degi.
Lofstlagsbreytingar hafa óbein áhrif á líf mitt því að ég hef stöðugar áhyggjur af afleiðingum þeirra og því hvernig líf næstu kynslóða verður.



Kafli 3 af 8 - Hvað get ég gert?

Hefur þú gert eitthvað sjálf(ur) til að draga úr loftslagsbreytingum? Hvaða máli telur þú að daglegt líf þitt eða lífstíll skipti fyrir loftslagsbreytingar?

Ég hef dregið úr neyslu, kaupi allt sem ég get umbúðalaust og reyni að endurnýta alla hluti. Það sem ég kaupi kaupi ég á nytjamörkuðum. Ég geng eða hjóla í t og fer aldrei í bíl nema á milli bæjarfélaga. Ég reyni að forðast allar vörur í miklum umbúðum og kaupi aldrei grænmeti eða ávexti sem pakkað er í plast. Kaupi ekki kjöt en borða það sé það á borðum annars staðar. Ég reyni að hafa áhrif í kringum mig með því að tala við fólk og opna augu þess fyrir mikilvægi þess að lifa eins umhverfisvænu lífi og hægt er.



Kafli 4 af 8 - Upplýsingagjöf

Hvar hefur þú helst fengið upplýsingar um loftslagsbreytingar (sjónvarp, netmiðlar t.d.)?

Kafli 5 af 8 - Úrræði

Telur þú að það sé hægt að takmarka hinar hnattrænu loftslagsbreytingar? Hvernig? Heldur þú að ný tækni, eins og t.d. rafmagnsbílar, skip og flugvélar, skipti máli fyrir loftslag í framtíðinni?

Kafli 6 af 8 - Aðrar ógnir

Eru einhverjar aðrar samfélagslegar ógnir að þínu mati sem eru uggvænlegri en loftslagsbreytingar? Ef svo er, hvaða?

Kafli 7 af 8 - Framtíðin

Flestir eða allir reyna að gera sér einhverja grein fyrir hvað framtíðin muni bera í skauti sér. Við viljum gjarnan að þú segir frá hugmyndum þínum um framtíðina, væntingum, óskum eða áhyggjum. Frásögnin má bæði vera um nærumhverfi þitt og framtíð jarðarinnar, eða annað hvort, og hún þarf ekki endilega að vera um loftslagsbreytingar. Hvernig sérð þú framtíðina fyrir þér?

Kafli 8 af 8 - Viðbætur og athugasemdir

Hér hefur þú pláss fyrir viðbætur eða athugasemdir við spurningaskrána.

Þetta aðfang er í Þjóðminjasafni Íslands. Safnið varðveitir um 7 milljónir mynda, um 130 þúsund muni og rúmlega 26 þúsund færslur um þjóðhætti. Í húsasafni eru um 60 hús.

 

Áætlað er að um 80-90 % þessara aðfanga sé komin í stafrænan búning, mismunandi eftir tegundum. Einnig er skráningin mismunandi ítarleg og myndir bara við hluta gagnanna.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.

Verðskrá myndapantana