Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
HeitiÖskupoki
Ártal1927

LandÍsland

Hlutinn gerðiÓlafur Daníelsson
GefandiJóhann Björn Ævarsson 1963-
NotandiÓlafur Daníelsson 1905-1980

Nánari upplýsingar

Númer2019-82-3
AðalskráMunur
UndirskráAlmenn munaskrá, Munasafn
Stærð12,7 x 10 cm
EfniSilki
TækniTækni,Textíltækni,Saumur,Vélsaumur

Lýsing

Öskupoki, vélsaumaður úr hvítu silki. Faldaður efst. Á framhlið eru handsaumaðar myndir. Annars vegar af konu með bláa skuplu eða húfu á höfði og með rauðan klút um hálsinn. Hins vegar af rauðu hjarta, fljúgandi fölbleikum vængjum. Á bakhliðinni er handsaumað ártalið „1927“ með dökkgrænum þræði. Faldurinn við opið efst er þræddur niður með einföldum, fölbleikum þræði sem jafnframt er notaður til að rykkja opinu saman. Nokkuð er farið að sjá á pokanum. Nokkrir blettir eru í honum og silkiefnið farið að trosna á nokkrum stöðum.  

Allir munirnir nr. Þjms. 2019-82 koma frá sama gefanda og voru í eigu afa hans, Ólafs Daníelsson (f. 1905, d. 1980), klæðskerameistara á Akureyri. Hann vann á saumastofu Gefjunar.

Þetta aðfang er í Þjóðminjasafni Íslands. Safnið varðveitir um 7 milljónir mynda, um 130 þúsund muni og rúmlega 26 þúsund færslur um þjóðhætti. Í húsasafni eru um 60 hús.

 

Áætlað er að um 80-90 % þessara aðfanga sé komin í stafrænan búning, mismunandi eftir tegundum. Einnig er skráningin mismunandi ítarleg og myndir bara við hluta gagnanna.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.

Verðskrá myndapantana