Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
HeitiÖskupoki
Ártal1925-1930

LandÍsland

Hlutinn gerðiÓlafur Daníelsson
GefandiJóhann Björn Ævarsson 1963-
NotandiÓlafur Daníelsson 1905-1980

Nánari upplýsingar

Númer2019-82-11
AðalskráMunur
UndirskráAlmenn munaskrá, Munasafn
Stærð21,5 x 13 cm
EfniSilki
TækniTækni,Textíltækni,Saumur,Vélsaumur

Lýsing

Öskupoki, vélasaumaður úr rauðu silki- eða satínefni. Á annarri hlið hans er handmáluð blómamynd: græn laufblöð og koparlituð blóm (hugsanlega hefur verið glimmer í málningunni). Blómin eru 4 og er eitt þeirra sýnu stærst. Efst við opið hefur pokinn verið faldaður með einföldum sporum er sá saumur hefur nú raknað upp. Öskupokinn hefur gulnað aðeins og nokkuð er af blettum í efninu. 

Allir munirnir nr. Þjms. 2019-82 koma frá sama gefanda og voru í eigu afa hans, Ólafs Daníelsson (f. 1905, d. 1980), klæðskerameistara á Akureyri. Hann vann á saumastofu Gefjunar.

Þetta aðfang er í Þjóðminjasafni Íslands. Safnið varðveitir um 7 milljónir mynda, um 130 þúsund muni og rúmlega 26 þúsund færslur um þjóðhætti. Í húsasafni eru um 60 hús.

 

Áætlað er að um 80-90 % þessara aðfanga sé komin í stafrænan búning, mismunandi eftir tegundum. Einnig er skráningin mismunandi ítarleg og myndir bara við hluta gagnanna.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.

Verðskrá myndapantana