Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
EfnisatriðiÍsbjarnarkoma, Ísbjörn
Ártal1969-2020
Spurningaskrá129 Ísbjarnarsögur

Sveitarfélag 1950Kópavogshreppur
Núv. sveitarfélagKópavogsbær
SýslaGullbringusýsla (2500) (Ísland)
LandÍsland
Kyn / Fæðingarár
heimildarm.
Kvenkyns / 1939

Nánari upplýsingar

Númer2020-2-25
AðalskráÞjóðhættir
UndirskráSpurningaskrár - Svör
Sent/Móttekið16.7.2020/22.7.2020
TækniTölvuskrift

Kafli 1 af 5 - Ísbjarnarkomur

Hefur þú, eða einhver sem þú þekkir, orðið persónulega var/vör við ísbirni hér á landi? Getur þú sagt frá þeirri reynslu, m.a. hvar sást eða heyrðist til dýranna, hvenær (hvaða ár), hvernig þau hegðuðu sér og hvernig þú eða aðrir brugðust við?

Nei.
En dóttir mín sem er fædd 1962 varð mjög uppnuminn þegar ísbjörn gekk á land í Grímsey 1969 og nærri jafnaldri hennar varð var við hann. Dýrið meira að segja gekk mjög nálægt þar sem strákurinn faldi sig. Þetta var til mikillar umræðu við matarborðið í marga daga og dagblöðin lesin og hlustað á fréttirnar með athygli.
Þessi sami ísbjörn var síðan stoppaður upp og við skoðuðum hann á safninu á Húsavík síðar. Held að ég hafi fengið auka prik hjá börnunum mínum vegna þess að bæjarstjóri Húsavíkur, Björn Friðfinnson var gamall skólabróðir minn og heilsaði okkur fjölskyldunni með virktum!
Ekki aðeins höfðu börnin séð frægt, dautt dýr sem var mjög hættulegt heldur lifandi bæjarstjóra sem tók í hendina á okkur.
Svona geta ísbirnir sem maður hefur ekki mætt haft áhrif á minningar barna og fulloðinna!


Hefur þú haft afspurn af ísbjarnarkomum (þ.e. án þess að hafa verið á staðnum)? Ef svo er, hvernig fréttir þú af þeim og hvernig var þeim lýst?

Nei.


Af hverju telur þú að ísbirnir komi til Íslands? Hefur það ákveðna merkingu í þínum huga? Hvaða merkingu?

Rekur með ís.


Hvað finnst þér að gera eigi við ísbirni sem koma til landsins?

Stundum þarf að skjóta þá ef þeir eru mjög aðframkomnir en fagmenn eiga að segja til um það.



Kafli 2 af 5 - Samskipti ísbjarna og manna

Hefur þú heyrt talað um að ísbirnir forðist manneskjur? Hvernig, ef svo er?

Nei, eiginlega ekki, held að lyktarskynið stýri þeim. og kannski hungur.



En að þeir drepi fólk og skepnur eða önnur dýr? Segðu frá því sem þú veist um þetta.

Veit það ekki.


Hvaða tilfinningar vekja ísbjarnarkomur hjá þér eða öðrum í kringum þig (t.d. spenna, ótti eða hrifning)? Af hverju?

Bæði ótta og spennu, kannski meðaumkvun.


Kannast þú við frásagnir um ísbjarnardráp? Hvaða aðferðir voru notaðar við drápið? Komu önnur dýr við sögu? Hvað var gert við skrokkinn og feldinn?

Bara það sem maður hefur lesið af frásögnum annarra.



Þekkir þú til uppstoppaðra ísbjarna eða annars konar leifa af þeim? Hvaða leifa og hvar eru þær varðveittar? Hvar og hvernig drápust þessi dýr?

Nei.


Þekkir þú einhver ráð eða aðferðir til að vernda sig gegn ísbjörnum? Hvaða úrræði?

Nei.


Hefur þú heyrt um vinsamleg samskipti ísbjarna og manna? Hvernig lýsa þau sér, ef svo er?

Nei.



Kafli 3 af 5 - Ísbjarnar-örnefni

Þekkir þú einhver bjarndýrs-, ísbjarnar- eða hvítabjarnar- örnefni? Viltu telja þau upp og hvar á landinu þau eru? Hvaða frásagnir kannt þú um þessi örnefni?

Kann ekki frásagnir, eru á ýmsum bókum.




Kafli 4 af 5 - Þjóðlegur fróðleikur um ísbirni

Ýmsar sögur og sagnir um ísbirni eru þekktar hér á landi. Segðu frá því helsta sem þér er kunnugt um þetta efni. Frásögnin má gjarnan vera löng og ýtarleg. Hvað hefur þú t.d. heyrt um að það boði ógæfu að drepa ísbirni eða að þeir séu menn í álögum? En að ísbirnir skilji mannamál? Hvað boðar það að dreyma ísbjörn? Þekkir þú frásagnir um samskipti ísbjarna og ófrískra kvenna? Hvað er „bjarnylur“? Getur þú nefnt dæmi um nafngjöf sem tengist þjóðtrú um ísbirni (Björn, Bjarni t.d.)? Hvaða önnur trú eða trúarviðhorf tengjast þeim?

Ég kem úr Borgarfirði, þar voru ekki sagðar sögur af ísbjörnum en þeirra var auðvitað getið. Að það þyrfti að vara sig á þeim, þungur hrammurinn dræpi auðveldlega mann eða sauð með einu höggi.


Þekkir þú vísur, brandara eða fleira í þeim dúr um ísbirni? Geturðu sagt frá þessu?

Nei.



Kafli 5 af 5 - Ísbirnir í myndlist

Þekkir þú málverk eða önnur listaverk af ísbjörnum? En veggskreytingar eða veggjakrot af ísbjörnum? Hvar á landinu eru þessi verk? Hverjir eru höfundar þeirra? Átt þú sjálf(ur) listaverk af ísbirni? Þú getur valið um að lýsa þessum listaverkum eða að senda okkur ljósmynd(ir) af þeim á vefsíðunni sarpur.is. Einnig má notast við netfangið thjodhattasafn@thjodminjasafn.is.

Átti teikningu eftir föður minn, skyggð blýantsteikning, hlýtur að hafa verið gerð eftir fyrirmynd í skólanum hans.


Hefur þú í fórum þínum aðra gripi, muni eða myndir sem tengjast ísbjörnum? Hvað er hér helst um að ræða, ef svo er?

Nei.


Þetta aðfang er í Þjóðminjasafni Íslands. Safnið varðveitir um 7 milljónir mynda, um 130 þúsund muni og rúmlega 26 þúsund færslur um þjóðhætti. Í húsasafni eru um 60 hús.

 

Áætlað er að um 80-90 % þessara aðfanga sé komin í stafrænan búning, mismunandi eftir tegundum. Einnig er skráningin mismunandi ítarleg og myndir bara við hluta gagnanna.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.

Verðskrá myndapantana