Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
ListamaðurRagnheiður Björk Þórsdóttir 1958-
VerkheitiLand sauðanna
Ártal2012

GreinTextíllist
Stærð100 x 130 cm
EfnisinntakÍslandsuppdráttur, Sauðkind, Ull

Nánari upplýsingar

NúmerLÍ-11552
AðalskráMyndlist/Hönnun
UndirskráAðalskrá

EfniTog, Ullarband
AðferðTækni,Textíltækni,Vefnaður,Röggvarvefnaður
HöfundarétturMyndstef , Ragnheiður Björk Þórsdóttir 1958-

Sýningartexti

Verkið Land sauðanna er ofið með gamalli tækni sem tíðkaðist hér við upphaf byggðar og var notuð til að vefa röggvarfeldi í kljásteinavefstað, en feldirnir voru ásamt vaðmáli aðalútflutningsvara landsmanna frá landnámi og fram á 13. öld. Þessi gamla tækni röggvarfeldarins er frábrugðin röggvarvefnaði samtímans sem sést t.d. í verkum Ásgerðar Búadóttur og Vigdísar Kristjánsdóttur. Bæði er hnúturinn sem er notaður til að binda röggvarnar í uppistöðuna frábrugðinn og einnig er efnisnotkun í röggvarfeldartækninni önnur en þar er tog notað í röggvarnar en ekki garn. Vefurinn lítur því út eins og gæra og á þjóðveldisöld var þessi feldur notaður sem skjólflík karlmanna. Þessi gamla vefnaðartækni féll í gleymsku hér á landi en hefur gengið í endurnýjun lífdaga síðastliðinn áratug. Heiti verksins, Land sauðanna, minnir okkur á mikilvægi sauðfjárbúskapar fyrir búsetu í landinu og lífsafkomu þjóðarinnar í gegnum tíðina en hefur einnig víðari skírskotun. Til dæmis er talað um sauðheimskan almúgann og ekki hefur alltaf þótt jákvætt að vera í sauðalitunum.


© Höfundarréttur

Afrit af safnkosti þeim er hér er birtur felur í sér höfundaréttarvarið efni, en birtingin fer fram á grundvelli samningskvaðasamnings á milli Myndstefs og viðkomandi safns. Samningurinn veitir enn fremur leyfi til endurnotkunar verkanna til einkanota og í kennslu eða í fræðsluskyni. Öll önnur endurbirting/eintakagerð er óheimil. Ef spurningar vakna um forsendur samningskvaðasamningsins, eða ef einstaka höfundur vill ekki heimila notkun verka sinna undir ofangreindum skilmálum, skal hafa samband við Myndstef


© Copyright

National and international copyright laws protect the artwork here presented. Publishing of the artwork on this website is based on a Extended Collective License (ECL) between Myndstef and each museum, according to the Icelandic copyright bill. This ECL also permits the use of the artworks for research, educational or private use. The artworks may not be reproduced or made public in any other way. Please contact Myndstef for further information or in order to obtain a license.

Þetta aðfang er í Listasafni Íslands. Safnið varðveitir rúmlega 13 þús. listaverk eftir rúmlega 800 listamenn og er tæplega helmingur þeirra Íslendingar. Meirihluti verkanna er eftir innlenda listamenn eða um 12 þús. verk. Flest verkanna eru gjafir til safnsins en tæplega fjórðungur safneignarinnar er keyptur.

 

Öll verk í safneigninni eru skráð í stafrænan gagnagrunn sem er aðgengilegur í safninu. Unnið er að skráningu þeirra í Sarp og birtingu upplýsinga á vefnum Sarpur.is.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.