Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
ListamaðurÓlöf Einarsdóttir 1959-
VerkheitiFjallasýn
Ártal2008

GreinTextíllist
Stærð300 x 65 x 65 cm

Nánari upplýsingar

NúmerLÍ-11636
AðalskráMyndlist/Hönnun
UndirskráAðalskrá

EfniHampur, Hrosshár, Hör
AðferðTækni,Textíltækni,Vefnaður,Spjaldvefnaður
HöfundarétturMyndstef , Ólöf Einarsdóttir 1959-

Sýningartexti

Innblásturinn í verkinu Fjallasýn er sóttur í íslenska náttúru eins og í flestum verka Ólafar. Hræringar í náttúrunni og það sem ólgar undir niðri hefur verið henni hugleikið umfjöllunarefni um árabil og sér hún ýmsar hliðstæður í tilfinningalífi fólks og hreyfingum og umróti jarðarkúlunnar. Veltir hún þannig iðulega fyrir sér tengslum náttúrunnar við manninn. Í verkum sínum notar Ólöf mjög tímafreka aðferð, spjaldvefnað, sem hún kynntist í námi sínu í Myndlista- og handíðaskólanum. Þetta er ævaforn aðferð sem er aðallega notuð við gerð nytjahluta en lítið notuð í myndverk eins og Ólöf gerir hér með nýstárlegum hætti. Í verkum sínum gerir hún iðulega tilraunir með form og liti, sem kalla fram ýmis náttúrufyrirbæri þar sem samspil þessara grunnþátta mynda sterka sjónræna heild. Hér er það þríhyrningslaga fjallið sem virðist eiga sér djúpar rætur sem vísa í jarðhræringar og eldsumbrot undir yfirborði jarðar.


© Höfundarréttur

Afrit af safnkosti þeim er hér er birtur felur í sér höfundaréttarvarið efni, en birtingin fer fram á grundvelli samningskvaðasamnings á milli Myndstefs og viðkomandi safns. Samningurinn veitir enn fremur leyfi til endurnotkunar verkanna til einkanota og í kennslu eða í fræðsluskyni. Öll önnur endurbirting/eintakagerð er óheimil. Ef spurningar vakna um forsendur samningskvaðasamningsins, eða ef einstaka höfundur vill ekki heimila notkun verka sinna undir ofangreindum skilmálum, skal hafa samband við Myndstef


© Copyright

National and international copyright laws protect the artwork here presented. Publishing of the artwork on this website is based on a Extended Collective License (ECL) between Myndstef and each museum, according to the Icelandic copyright bill. This ECL also permits the use of the artworks for research, educational or private use. The artworks may not be reproduced or made public in any other way. Please contact Myndstef for further information or in order to obtain a license.

Þetta aðfang er í Listasafni Íslands. Safnið varðveitir rúmlega 13 þús. listaverk eftir rúmlega 800 listamenn og er tæplega helmingur þeirra Íslendingar. Meirihluti verkanna er eftir innlenda listamenn eða um 12 þús. verk. Flest verkanna eru gjafir til safnsins en tæplega fjórðungur safneignarinnar er keyptur.

 

Öll verk í safneigninni eru skráð í stafrænan gagnagrunn sem er aðgengilegur í safninu. Unnið er að skráningu þeirra í Sarp og birtingu upplýsinga á vefnum Sarpur.is.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.