Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
HeitiLogbók
MyndefniLogbók
Ártal1946

ByggðaheitiReykjavík
Sveitarfélag 1950Reykjavík
Núv. sveitarfélagReykjavíkurborg
SýslaGullbringusýsla (2500) (Ísland)
LandÍsland

Nánari upplýsingar

Númer2021-1-2
AðalskráMunur
UndirskráStyrkverkefni-Safnasjóður, Almenn munaskrá
Stærð20 x 11,4 x 1,3 cm
EfniPappír
TækniTækni,Prentun

Lýsing

Logbók Jóns Þ. Ísakssonar flugmanns og flugmferðarstjóra. Bókin er brún að lit og á henni stendur með gylltum stöfum neðst í hægra horni: “Loftferðabók”. Logbókin er merkt Jóni á titilsíðu og er tekin í notkun 22. júlí 1946. Í hana eru skráð bæði flug sem Jón flaug þegar hann var í  flugnámi við Flugskóla Akureyrar og í Tulsa, Bandaríkjunum. Síðasta færsla bókarinnar er skráð 19. mars 1947.

Jón Þórmundur Ísaksson fæddist 28. febrúar 1927 í Vestmannaeyjum, hann lést 14. maí 2015. Í æviágripi Jóns sem birt var í Morgunblaðinu 22. maí 2015 segir: „Jón stundaði svifflugsnám og hóf síðan flugnám hjá Flugskóla Akureyrar á Melgerðismelum í Eyjafirði og lauk sólóprófi árið 1946. Hann fór í framhaldsnám til Spartan School of Aeronautics í Tulsa, Oklahoma, og lauk atvinnuflugmannsprófi þar í árslok 1947 og blindflugsprófi í maí 1948. Við heimkomuna var Jón ráðinn flugmaður hjá Loftleiðum og starfaði þar til ársins 1953, er hann hóf nám og störf hjá Flugmálastjórn. Jón lagði stund á og lauk grunnnámi og ýmsu sérnámi í flugumferðarstjórn og starfaði lengst af sem varðstjóri í flugturni Reykjavíkurflugvallar. Hann lét af starfi í árslok 1990.”  Flugmannsskírteini Jóns var númer 86.


Heimildir

Morgunblaðið, 22. maí 2015. Sótt af vef: https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1554299/.

Flugsafn íslands var stofnað 1999. Hlutverk safnsins er að safna og varðveita sögu flugsins á Íslandi, vekja athygli á mikilvægi þess og geyma sögu þeirra sem að flugmálum hafa komið.

 


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.