Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
ListamaðurTumi Magnússon 1957-
VerkheitiBráðið plast & bráðið smjör
Ártal1994

GreinMálaralist - Olíumálverk
Stærð200 x 180,5 cm
EfnisinntakKyrralífsmynd, Uppstilling

Nánari upplýsingar

NúmerLÍ-5731
AðalskráMyndlist/Hönnun
UndirskráAðalskrá

EfniOlíulitur, Strigi
AðferðTækni,Málun
HöfundarétturMyndstef , Tumi Magnússon 1957-

Sýningartexti

Tumi Magnússon er í hópi þeirra myndlistarmanna sem aðhylltust óþvingaða tjáningu nýja málverksins í upphafi níunda áratugarins. Í elstu verkum hans birtist draumveruleiki þar sem hvunndagshlutir eru settir í nýtt samhengi svo að merking þeirra og notagildi fær nýtt inntak. Á níunda og tíunda áratugnum virtust verk hans vera óhlutbundin og snúast um samspil lita, samspil sem oft kemur á óvart og við fyrstu sýn virðist sem litirnir hafi lent saman fyrir tilviljun, en að athuguðu máli sést að svo er ekki. Það er ekki um að villast að heiti verkanna og litir vísa til hversdagslegra fyrirbæra sem oftar en ekki eru í fljótandi formi. Reyndar hefur Tumi bent á að vökvi sé formlaus hlutur og því í raun dálítið abstrakt. Í þessum verkum sjáum við hvorki form né lögun fyrirmyndarinnar, aðeins litinn en titillinn gefur okkur vísbendingu um að þau eigi sér raunverulega fyrirmynd. Í þessu tilviki er það bráðið plast og bráðið smjör.  


© Höfundarréttur

Afrit af safnkosti þeim er hér er birtur felur í sér höfundaréttarvarið efni, en birtingin fer fram á grundvelli samningskvaðasamnings á milli Myndstefs og viðkomandi safns. Samningurinn veitir enn fremur leyfi til endurnotkunar verkanna til einkanota og í kennslu eða í fræðsluskyni. Öll önnur endurbirting/eintakagerð er óheimil. Ef spurningar vakna um forsendur samningskvaðasamningsins, eða ef einstaka höfundur vill ekki heimila notkun verka sinna undir ofangreindum skilmálum, skal hafa samband við Myndstef


© Copyright

National and international copyright laws protect the artwork here presented. Publishing of the artwork on this website is based on a Extended Collective License (ECL) between Myndstef and each museum, according to the Icelandic copyright bill. This ECL also permits the use of the artworks for research, educational or private use. The artworks may not be reproduced or made public in any other way. Please contact Myndstef for further information or in order to obtain a license.

Þetta aðfang er í Listasafni Íslands. Safnið varðveitir rúmlega 13 þús. listaverk eftir rúmlega 800 listamenn og er tæplega helmingur þeirra Íslendingar. Meirihluti verkanna er eftir innlenda listamenn eða um 12 þús. verk. Flest verkanna eru gjafir til safnsins en tæplega fjórðungur safneignarinnar er keyptur.

 

Öll verk í safneigninni eru skráð í stafrænan gagnagrunn sem er aðgengilegur í safninu. Unnið er að skráningu þeirra í Sarp og birtingu upplýsinga á vefnum Sarpur.is.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.