Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
HeitiKornett
Ártal1875

LandÍsland

GefandiBirna Eybjörg Gunnarsdóttir 1948-2024, Embla Sigurgeirsdóttir 1978-, Gunnur Sif Sigurgeirsdóttir 1968-, Solveig Ýr Sigurgeirsdóttir 1973-, Steingrímur Sigurgeirsson 1966-
NotandiHelgi Helgason 1848-1922

Nánari upplýsingar

Númer2022-91-1
AðalskráMunur
UndirskráAlmenn munaskrá, Munasafn
Stærð36 x 19,5 x 13 cm
EfniMálmur
TækniTækni,Málmsmíði

Lýsing

Kornett (málmblásturshljóðfæri) sem var í eigu Helga Helgsonar (f. 1848, d. 1922), tónskálds og trésmiðs. Kornettið er í góðu sigkomulagi. Á kornettinu er merki úr silfri sem á stendur: Carl Möller Aarhus.                                  

Þess var minnst þann 14. desember 2022 að 100 ár væru liðin frá andláti Helga Helgasonar tónskálds og trésmiðs. Á þeim degi afhentu afkomendur hans Þjóðminjasafni Íslands þrjá gripi úr hans eigu til varðveislu: kornett, nótnaklemmu Þjms. 2022-91-2 og tónsprota Þjms. 2022-91-3 sem Helgi smíðaði sjálfur. 

Upplýsingar frá gefendum: 

Hljóðfærið eignaðist Helgi Helgason í Kaupmannahöfn árið 1875. Helgi og kona hans Guðrún Sigurðardóttir (f. 1848, d. 1943) eignuðust sjö börn og erfði yngsta barn þeirra, Helga G. Helgadóttir kornettið eftir hans dag. Hljóðfærið gekk síðan til dóttur Helgu, Sigríðar Einarsdóttur, hjá henni stóð kornettið ofan á píanói í áratugi. Jafnan var talað um hljóðfærið sem „lúðurinn hans langafa“ og reyndu börn í fjölskyldunni oft að blása í það með misjöfnum árangri. Kornettið gekk síðan til afkomenda Sigríðar. 

Helgi var brautryðjandi í lúðrablæstri hér á landi. Við konungskomuna árið 1874 heyrði hann lúðrasveit konungs leika í Reykjavík og á Þingvöllum og við það vaknaði hjá honum löngun til að stofna lúðrasveit á Íslandi. Hann hélt því til Kaupmannahafnar árið eftir í tónlistarnám.

Þegar hann sneri heim hafði hann hljóðfæri meðferðis til að stofna hornaflokk. Þar á meðal var þetta kornett sem hann blés sjálfur í og var í hans eigu alla tíð. Hann stofnaði Lúðraþeytarafélag Reykjavíkur, 26. mars 1876, sem í dag er Lúðrasveit Reykjavíkur. Félagið starfaði í 28 ár undir hans stjórn, en það var fyrsta félagið í þessa veru hér á landi.

Helgi samdi mörg þekkt lög, þ. á m. Öxar við ána við ljóð Steingríms Thorsteinssonar, sem mun vera hans þekktasta lag. Hann samdi einnig sorgarmarsinn sem leikinn var við útför Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur konu hans árið 1880, var það fyrsta íslenska tónverkið sem samið var fyrir hljóðfæraflokk. (sjá heimildir hér að neðan). 

Í safneign Þjóðminjasafns Íslands eru varðveittar ljósmyndir af Helga Helgasyni sjá m.a. Mms-2911

Á ljósmyndum Lpr-520 og Lpr-518 má sjá Helga og þrjá aðra hornleikara við Öxarárfoss á Þingvallafundinum árið 1885. Lagið Öxar við ána var frumflutt við það tilefni. 

Á ljósmynd Mms-3875 má sjá Helga ásamt Lúðraþeytarafélagi Reykjavíkur. Á ljósmyndinni situr Helgi með kornettið í fremri röð fyrir miðju.


Heimildir

Útför Jóns Sigurðssonar og konu hans. 1880, 21. maí. Þjóðólfur, bls. 54.

 

Una Margrét Jónsdóttir. 2022. Raddir heyri´eg ótal óma. Ríkisútvarpið, Reykjavík. 15. september.

Þetta aðfang er í Þjóðminjasafni Íslands. Safnið varðveitir um 7 milljónir mynda, um 130 þúsund muni og rúmlega 26 þúsund færslur um þjóðhætti. Í húsasafni eru um 60 hús.

 

Áætlað er að um 80-90 % þessara aðfanga sé komin í stafrænan búning, mismunandi eftir tegundum. Einnig er skráningin mismunandi ítarleg og myndir bara við hluta gagnanna.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.

Verðskrá myndapantana