Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
Ártal1970-1980

LandÍsland
Kyn / Fæðingarár
heimildarm.
Kvenkyns / 1951

Nánari upplýsingar

Númer2023-3-3
AðalskráÞjóðhættir
UndirskráSpurningaskrár - Svör
SentMóttekið9.1.2024

Kafli 1 af 5 - Afstaða til varnarliðsins

Hver er afstaða þín til veru varnarliðsins á Miðnesheiði? Hvers vegna?

Frekar á móti


Tengist þín afstaða til varnarliðsins öðrum pólitískum skoðunum þínum? Ef svo er, hvernig?

Held að það megi segja það


Tilheyrir þú eða hefur tilheyrt einhverjum samtökum tengdum veru varnarliðsins?

nei



Kafli 2 af 5 - Mótmæli

Kannast þú við að veru varnarliðsins hafi verið mótmælt? Ef svo er, hver var hvatinn að baki mótmælunum? Breyttist það með tímanum?

já kannast við það, þekki fólk sem gekk Keflavíkurgöngur ár eftir ár. Það fólk almennt á móti hernum, erfitt að átta sig hvort eða hvernig það hefur breyst´


Hvernig lýstu mótmælin sér, ef einhver voru? Voru mótmælin að þínu mati nauðsynleg?

Man eftir mótmælum vegna Ntófunda og eins og áður er sagt keflavíkurgöngum


Tókst þú einhvern tímann þátt í mótmælum?

Ekki svo ég muni


Hver er afstaða þín til mótmælanna? Hefur hún breyst gegnum árin? Ef svo er, hvers vegna?

Þau áttu og eiga rétt á sér


Finnst þér að mótmælin hafi breytt einhverju?

Trúlega ekki miklu en mikil þrautseigja hjá mörgum mótmælendum



Kafli 3 af 5 - Keflavíkurgöngur

Tókst þú einhvern tímann þátt í Keflavíkurgöngu? Ef svo er, hvenær var það og hverjar voru ástæðurnar?

Nei


Hvernig var stemningin kringum Keflavíkurgöngurnar?

Oftast bara góð, en einhverjir sem lentu í eggjakasti held það hafi verið í þeim fyrstu



Kafli 4 af 5 - Menningaráhrif

Þekkir þú ljóð, sönglög eða sögur sem samdar voru til stuðnings hernaðarandstöðunni? Ef svo er, getur þú nefnt dæmi?

Sóeyjar kvæði og svo auðvita Nallinn



Kafli 5 af 5 - Að lokum

Við hvaða tímabil miðast svörin þín hér að framan?

1970 til 1980 myndi ég halda


Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?

Nei


Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?

Ánægð með að þessi spurnigaskrá er send út


Þetta aðfang er í Þjóðminjasafni Íslands. Safnið varðveitir um 7 milljónir mynda, um 130 þúsund muni og rúmlega 26 þúsund færslur um þjóðhætti. Í húsasafni eru um 60 hús.

 

Áætlað er að um 80-90 % þessara aðfanga sé komin í stafrænan búning, mismunandi eftir tegundum. Einnig er skráningin mismunandi ítarleg og myndir bara við hluta gagnanna.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.

Verðskrá myndapantana