Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
Ljósmyndari/Höf.Frank Frederickson
MyndefniDráttarklár, Flugmaður, Flugvél, Hópmynd
Ártal1919

ByggðaheitiVatnsmýri
Sveitarfélag 1950Reykjavík
Núv. sveitarfélagReykjavíkurborg
SýslaGullbringusýsla
LandÍsland

Nánari upplýsingar

NúmerLpr/1994-319-2
AðalskráMynd
UndirskráLjós- og prentmyndasafn (Lpr)
Stærð7,8 x 12,5
GerðSvart/hvít pósitíf - Annars konar pósitíf
GefandiPálína Þorleifsdóttir

Lýsing

Eftirtaka. Myndin sýnir einshreyfils tvíþekju, AVRO 504K á "flugvellinum í Vatnsmýrinni. Fyrir framan hægri væng hennar standa fjórir karlmenn, einn þeirra með dæmigerða flugmannaleðurhúfu. Spenntir við vélina eru tveir dráttarklárar og reiðhestur stendur við hlið þeirra.

Fyrir ofan myndina er skrifað: 'í Vatnsmýrinni ~ Rvík'. Í tengslum við myndina er skrifað á síðuna í tvöföldum teiknuðum ramma: 'Fyrsta flug á Íslandi. Faber og Fredricksen 3 - 25. sept. 1919'. Fyrir neðan er fyrstadagspóstkort, stimplað 3.9.1959, í tilefni af 40 ára flugi á Íslandi. Á kortið er skrifað: 'Sig. Jónsson flugm. Handhafi flugm.skírt. N.1.'


Heimildir

Skrá yfir myndefni og ljósmyndara fylgir með frá gefanda.
Annálar íslenskra flugmála 1917-28, bindi 1, Bls. (66) og 82.

Þetta aðfang er í Þjóðminjasafni Íslands. Safnið varðveitir um 7 milljónir mynda, um 130 þúsund muni og rúmlega 26 þúsund færslur um þjóðhætti. Í húsasafni eru um 60 hús.

 

Áætlað er að um 80-90 % þessara aðfanga sé komin í stafrænan búning, mismunandi eftir tegundum. Einnig er skráningin mismunandi ítarleg og myndir bara við hluta gagnanna.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.

Verðskrá myndapantana