Leita



Vinsamlega sýnið biðlund

Ný verk í safneign Listasafns Íslands 2022

Vefsýning
Sýningaraðilar:
Listasafn Íslands

Sýningarstjóri:
Anna Jóa

Birt á vef:
3.11.2022

Árlega bætast ný verk í safneign Listasafns Íslands, bæði keypt verk og gjafir og eru að jafnaði keypt á milli 20 og 30 verk á ári. Keypt verk eru tæplega fjórðungur safneignarinnar og gjafir um ¾ hlutar. Í Listasafni Íslands starfar Innkaupanefnd skipuð af ráðherra til þriggja ára í senn sem ákveður kaup listaverka til safnsins og fjallar um gjafir sem safninu eru boðnar. Við val listaverka ber nefndinni meðal annars að fara eftir listrænu gildi þeirra og hafa í huga hvað safnið á eftir sama höfund auk þess sem leitast skal við að safnkosturinn endurspegli sem best strauma og stefnur í íslenskri og alþjóðlegri myndlist á hverjum tíma. Listasafn Íslands er eign íslenska ríkisins og er höfuðsafn á sviði myndlistar. 

Hér má finna upplýsingar um þau verk sem hafa bæst við safneign Listasafns Íslands árið 2022, bæði innkaup og gjafir sem hafa verið þegnar.

Þess má einnig geta að á árinu 2022 barst safninu vegleg gjöf í tilefni 40 ára afmælisýningar Gallerís Gangs og eru öll verkin á sérsýningunni "40 ára afmælissýning Gangsins" á Sarpi. 

/