Leita



Vinsamlega sýnið biðlund

Sviðsett augnablik

Sýningaraðilar:
Listasafn Íslands

Sýningarstjóri:
Vigdís Rún Jónsdóttir

Sýningartími:
22.01.2022 - 08.05.2022

Sýningin Sviðsett augnablik varpar ljósi á einn fjölbreyttasta safnkostinn í safneign Listasafns Íslands sem er ljósmyndin. Verkin spanna tímabilið frá áttunda áratug síðustu aldar til dagsins í dag. Staða ljósmyndunar sem listgreinar hefur eflst á síðastliðnum áratugum en lengi vel naut ljósmyndin ekki viðurkenningar sem fullgilt listaverk vegna fjölföldunareiginleika sem þóttu stangast á við hið einstaka og háleita í listum. Á Íslandi má segja að með notkun hugmyndalistamanna á ljósmyndinni á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar hafi miðillinn fyrst farið að njóta athygli sem myndlistarform. Sýningin Sviðsett augnablik vitnar um þá miklu grósku sem hefur orðið í ljósmyndun sem listsköpun á síðastliðnum fimmtíu árum og fest ljósmyndina í sessi sem myndlistarform til jafns við aðra rótgrónari listmiðla. Í dag nýtur ljósmyndin virðingar sem margháttaður miðill sem tekur sífelldum breytingum og hefur stækkað mengi samtímalistar umtalsvert.

/